Undirbúningur

Söluyfirlit

Greiðslumat

Fjármögnun kaupa

Kauptilboð

Kaupsamningur

Tryggingar

Vaxtabætur

Fjármögnun kaupa

Algengasta leiðin á Íslandi til þess að fjármagna kaup á íbúðarhúsnæði til eigin nota er að taka lán hjá Íbúðalánasjóði eða nú síðustu árin hjá bönkunum og taka ef þarf viðbótarlán hjá sínum lífeyrissjóði eða banka.

Mikilvægt er fyrir þá sem íhuga fasteignakaup að skoða vel hvaða fjármögnunarleiðir eru í boði, tímalengd, vaxtakjör, lántökukostnað, uppgreiðslumöguleika o.þ.h. Tímalengd láns og vaxtakjör hafa mikið að segja um mánaðarlega greiðslubyrði.

Nauðsynlegt er að framkvæma bráðabirgðamat á eigin greiðslugetu til þess að gera sér hugmynd um hvaða verðbil á eignum hentar. Flestar lánastofnanir fara fram á að fullt greiðslumat  fylgi lánsumsókn og misjafnt er hvaða gagna stofnanirnar krefjast fyrir matið.

Mikilvægt er að kynna sér brunabóta- og fasteignamat eignar sem til stendur að bjóða í þar sem flestar lánastofnanir hafa einhver viðmið um vefhæfni fasteignar þar sem lánsupphæð má ekki fara yfir ákveðið hlutfall brunabóta- og fasteignamats.

Yfirtaka áhvílandi lána er stundum góður kostur. Viðkomandi lánastofnun þarf að samþykkja yfirtökuna og þarf kaupandi að ganga í gegnum greiðslumat hjá þeirri lánastofnun áður en vilyrði fyrir yfirtöku fæst. Ef vaxtakjör á áhvílandi láni eru síðri en á nýju láni þarf einnig að taka inn í útreikninga lántökukostnað sem oft gleymist.

Hér fyrir neðan eru tenglar á ýmsar lánastofnanir og ganglegar vefsíður þegar kemur að því að kynna sér fjármögnunarmöguleika við húsnæðiskaup.

Tenglar
Bráðabirgðamat á síðu ÍLS  
Arionbanki  
Landsbankinn  
Íslandsbanki  
Íbúðalánasjóður  
Íslenskir lífeyrissjóðir   
Umboðsmaður skuldara