Undirbúningur

Söluyfirlit

Greiðslumat

Fjármögnun kaupa

Kauptilboð

Kaupsamningur

Tryggingar

Vaxtabætur

Kaupsamningur

Þegar kauptilboð hefur verið samþykkt eru kaupandi og seljandi boðaðir til fasteignasalans þar sem gengið er frá kaupsamningi og öll atriði hans kynnt bæði kaupanda og seljanda.

Við undirritun kaupsamnings fer einnig fram undirritun lána og lánaskjölin síðan send í þinglýsingu ásamt kaupsamningnum. Við kaupsamningsgerð þarf að gæta þess að öll ákvæði sem samið hefur verið um munnlega séu færð inn í kaupsamninginn ásamt því að fara þarf ítarlega yfir ástand eignarinnar til þess að enginn vafi leiki á um að kaupandi hafi verið upplýstur um það.

Fáeinum vikum eftir undirritun boðar fasteignasalinn svo kaupanda og seljanda til sín til þess að skrifa undir afsal á eigninni.