Undirbúningur

Söluyfirlit

Greiðslumat

Fjármögnun kaupa

Kauptilboð

Kaupsamningur

Tryggingar

Vaxtabætur

Kauptilboð

Þegar kaupandi hefur fundið réttu eignina gerir hann kauptilboð í eignina og getur seljandi samþykkt, hafnað eða gert gagntilboð. Þegar kauptilboð er samþykkt er kominn á bindandi samningur milli kaupanda og seljanda og er mjög mikilvægt að kaupandi geri í tilboði fyrirvara um fjármögnun. 

Ef allt gengur upp og fjármögnun fæst hnökralaust boðar fasteignasalinn fljótlega kaupanda og seljanda til undirritunar kaupsamnings. Í kauptilboði er getið um hvenær kaupgreiðslur eiga að berast, hvaða fylgifé á að fylgja með eiginni o.s.frv. Mikilvægt er að láta færa inn í kaupsamning öll þau atriði sem skipta máli varðandi eignina og hafa verið rædd munnlega á milli kaupanda og seljanda.