Undirbúningur

Söluyfirlit

Greiðslumat

Fjármögnun kaupa

Kauptilboð

Kaupsamningur

Tryggingar

Vaxtabætur

Söluyfirlit

Söluyfirlit er mjög mikilvægt skjal þegar kemur að sölu fasteigna. Fasteignasalinn ber ábyrgð á því að söluyfirlitið sé rétt og geymi yfirlit um mikilvæg atriði er varða sölu eignarinnar. Kaupandi verður að skoða söluyfirlitið ítarlega ásamt því að skoða eignina vel. Í söluyfirlitinu þarf að koma fram yfirlýsing húsfélags, hvaða þinglýsingar eru á eiginni, föst gjöld, ástand eignarinnar og staðsetning, söluverð, skiptasamningur o.fl.


Úr lögum 99/2004 um sölu fasteigna gr.11

Í söluyfirliti skal auk almennrar lýsingar á fasteign m.a. koma fram:
       a. söluverð það sem eigandi óskar að fá fyrir eign sé það ákveðið,
       b. staðsetning eignar og númer, stærð hennar samkvæmt opinberum skrám, fasteignamat, brunabótamat, byggingarlag og byggingarefni og byggingarár eignar og einstakra hluta hennar ef við á; teikning sem sýni fyrirkomulag innan húss skal jafnan vera fyrir hendi, svo og lóðaruppdráttur sé hann til,
       c. upplýsingar um ástand eignar og einstakra hluta hennar, þar á meðal um galla sem seljanda og/eða fasteignasala er kunnugt um á eign,
       d. föst gjöld af eigninni, áhvílandi veðskuldir, kvaðir og önnur eignahöft, samkvæmt veðbókarvottorði; tilgreina skal eftirstöðvar og lánskjör, þar á meðal vexti og verðtryggingu allra áhvílandi veðskulda og kvaða og tilgreina sérstaklega ef skuld er í vanskilum; um þær veðskuldir sem fylgja eiga við sölu skal tilgreina fjölda ógreiddra afborgana,
       e. kostnaður sem kaupandi hefur af kaupum, þar á meðal þinglýsingarkostnaður, stimpilgjöld, umsýslukostnaður kaupanda, lántökukostnaður sé það unnt o.fl.
       f. tekjur af eigninni ef um er að ræða eign sem ætluð er til atvinnustarfsemi,
       g. afhendingarástand eignar sem seld er ófullgerð, og skal það vera í samræmi við staðla sem út eru gefnir af opinberum stofnunum er annast byggingarrannsóknir eða byggingareftirlit,
       h. húsgjöld og yfirstandandi eða væntanlegar framkvæmdir sem búið er að ákveða á fundi húsfélags, sé um fjöleignarhús að ræða, og um stöðu eiganda gagnvart hússjóði og framkvæmdasjóði húsfélags,
       i. eignaskiptayfirlýsing eða samningur sé um fjöleignarhús að ræða,
       j. önnur atriði sem kunnugt er um, svo sem skýrslur um ástand eignar sem gerðar hafa verið.


Lög um sölu fasteigna