Undirbúningur

Söluyfirlit

Greiðslumat

Fjármögnun kaupa

Kauptilboð

Kaupsamningur

Tryggingar

Vaxtabætur

Tryggingar

Öllum eigendum fasteigna er skylt að brunatryggja eign sína hjá tryggingafélagi. Einnig er þeim skylt að greiða viðlagatryggingagjald sem tryggingafélag innheimtir með lögboðinni brunatryggingu.
Upphæð og iðgjald brunatryggingar miðast við brunabótamat fasteignarinnar en hægt er að kaupa viðbótarbrunatryggingu ef miklu munar á brunabótamati og áætluðu verðmati.
Lögboðin brunatrygging tekur aðeins til fasteignarinnar sjálfrar en ekki til innbús. Innbús- og heimilistryggingar eru valkvæðar og fást um þær upplýsingar hjá tryggingafélögunum.

Um brunabótamat hjá þjóðskrá/fasteignaskrá  
Lög um brunatryggingar 
Reglugerð um lögboðna brunatryggingu húseigna   

VÍS
SJÓVÁ
TM
Vörður
Elísabet