Undirbúningur

Söluyfirlit

Greiðslumat

Fjármögnun kaupa

Kauptilboð

Kaupsamningur

Tryggingar

Vaxtabætur

Undirbúningur

Kaup á fasteign eru einhver stærstu viðskipti sem flestir eiga í á lífsleiðinni og því er mjög mikilvægt að undirbúa sig sem best. Það er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir kaupgetu og því að hverju þú ert að leita.

Hægt er að framkvæma bráðabirgða greiðslumat á síðu íbúðalánasjóðs en greiðslugetuútreikningar eru mismunandi á milli lánastofnanna og er bráðabirgðamatið ekki lánsloforð. Nauðsynlegt er að taka saman allar skuldir og skuldbindingar til þess að fá sem raunhæfasta mynd af greiðslugetunni.

Það sem er einnig mikilvægt að gera áður en farið er af stað er að hugsa út í að hverju þú ert að leita í eign og forgangsraða atriðum eins og staðsetningu, stærð og öðrum eiginleikum. Er til dæmis garður eða bílskúr nauðsynlegur fyrir þig, einbýli eða fjölbýli, einbýli á einni hæð eða fleirum, stærð fjölbýlis, stærð og herbergjafjöldi eignar o.s.frv.
Því betur undirbúin/n sem þú ert þeim mun auðveldar á fasteignasalinn með að finna fyrir þig réttu eignina.

Við viljum einnig minna á að nauðsynlegt er að varðveita vel öll þau gögn sem þú færð í hendur og varða kaup á eign.