| Húsaleigubætur Innheimta leigu og vanskil Uppsögn leigusasmnings Neyðartilfelli Viðgerðarbeiðnir Mikilvægi skriflegs leigusamnings Skil á húsnæði, úttekt og þrif Tryggingafé Vátryggingar Hagnýtar upplýsingar Spurt og svarað | Hagnýtar upplýsingar Hvernig er best að halda við hinum ýmsu hlutum á heimilinu til þess að minnka líkur á skemmdum og sliti. Baðherbergi/Þvottahús - Gott loftstreymi er mikilvægt í öllum rýmum húsnæðis en sérstaklega er mikilvægt að lofta vel út úr rýmum eins og baðherbergjum og þvottahúsum þar sem mikill raki getur safnast.
- Niðurföll á gólfum safna í sig óhreinindum og þarf að þrífa þau reglulega til þess að minnka líkurnar á að þau stíflist. Best er að lyfta ristinni upp og hreinsa vel öll óhreinindi.
- Niðurföll í vöskum, sturtu og baði þarf einnig að hreinsa reglulega svo ekki myndist stíflur. Best er að hreinsa niðurföllin mjög reglulega með mildum hreinsiefnum til þess að koma í veg fyrir að þurfi að nota sterkari efni eins og stíflueyði.
- Kísill safnast fyrir á flísum og þarf að hreinsa reglulega. Til að minnka kísilmyndun er gott að sprauta köldu vatni á sturtu/bað eftir notkun.
- Matarsódi er gott hreinsiefni á erfiða bletti á baðherberginu, þ.á.m. til þess að ná kísli af hreinlætis- og blöndunartækjum. Matarsódi virkar einnig mjög vel til þess að losa um minni stíflur í vöskum og niðurföllum. Þá er nokkuð af matarsóda sett í niðurfallið og látið bíða nokkra stund, síðan er sjóðandi heitu vatni hellt þar ofan í. Einnig er hægt að nota uppþvottalög í stað matarsóda.
Eldhús - Þegar helluborð eru þrifin skal velja hreinsiefni sem er sérstaklega gert fyrir viðkomandi tegund helluborðs (keramik, span, o.s.frv.).
- Til þess að þurfi að þrífa bakaraofn sjaldnar og minnka líkur á innbrunnum matarleifum er gott að hafa ofnplötu alltaf undir því sem bakað er.
- Mikilvægt er að nota mild hreinsiefni á ísskáp og að afþýða frysti reglulega.
- Til þess að halda góðu lofti í eldhúsinu er best að láta gufugleypinn ganga við alla matargerð, það minnkar einnig raka.
Ofnar og vatn - Passa verður að ofnlokar verði ekki fyrir hnjaski. Gerist það er hætt við að heita vatnið streymi óhindrað og valdi mjög háum hitaveitureikningum.
- Mikilvægt er að hreyfa við ofnkrönum reglulega til þess að þeir festist ekki og muna verður að hreyfa þá líka yfir sumartímann.
- Ef rennsli minnkar í blöndunartækjum er gott að byrja á því að hreinsa sigtin áður en farið er í að kalla út pípulagningamenn, mjög hentugt er að nýta gamla tannbursta til þess að ná burt óhreinindunum.
- Aldrei má byrgja ofna með húsgögnum eða gluggatjöldum.
Gólfefni - Parket þarf alltaf að þvo með mildri sápu og litlu vatni. Best er að nánast þurrmoppa parket til þess að verja það fyrir skemmdum og til þess að minnka líkur á tuskuförum. Á plastparket má setja eina tappafylli af borðediki út í skúringavatnið til þess að minnka tuskuför.
- Gólfdúk er best að þurrmoppa reglulega og skúra aðeins upp úr volgu vatni. Gólfdúk þarf einnig að bóna reglulega og fara þarf þá eftir leiðbeiningunum sem uppgefnar eru á bóninu.
- Flísar eru líklega eitt sterkasta gólfefnið og þola almennt vel raka. Best er að þvo flísar með vatni og velja sápu sem gerir þær ekki of hálar.
- Náttúrustein þarf að þrífa með þar til gerðum hreinsiefnum og fara eftir þeim leiðbeiningum sem með þeim fylgja. Komi hvít skán á dökkan náttúrustein er best að fara yfir hann með þurri moppu eftir skúringar til þess að þurrka upp allt aukavatn.
- Kork er gott að þurrmoppa reglulega og fara svo yfir með volgu sápuvatni.
- Teppi er best að þrífa með ryksugu og hreinsa svo reglulega vel með teppahreinsivél og efnum.
Innréttingar - Mikilvægt er að nota aðeins milda sápu og ekki of mikið af sápuvatni á innréttingar. Athugið að salmíak getur skemmt spónlagða fleti.
Hurðar - Hurðar þarf að rykhreinsa reglulega og séu þær lakkaðar má strjúka af þeim með mildu sápuvatni. Gott er að smyrja hjarir og læsingar reglulega.
Gluggar - Til þess að fá sem minnst för þegar rúður eru þrifnar að innan eða utan er best að setja tappafylli af borðediki í vatnið og enga sápu ef hægt er og fara svo yfir allan rúðuna með örtrefjatusku eftir að búið er að þrífa hana.
- Alltaf þarf að gæta þess að þéttiraki myndist ekki innan á rúðum þar sem vatnið getur valdið rakaskemmdum á körmum, sólbekkjum og í gluggakistum. Sjáist merki um þéttiraka þarf að lofta betur út í húsnæðinu. Fara þarf reglulega yfir stormjárn og gluggakrækjur til þess að tryggja að ekkert þurfi að gera við eða endurnýja.
|