| Mikilvægi skriflegs leigusamnings | Spurt og svarað
Hvað kröfur þarf ég að uppfylla til að gerast leigjandi hjá Hlíð? Þú þarft að vera lög- og fjárráða, leggja fram 3 mánaða tryggingu og að samþykkja umgengnisreglur félagsins. Hvað þarf að borga mikið í tryggingu? Leigjandi þarf að reiða fram því sem svarar 3 mánaða leigugreiðslum í tryggingu. Tryggingin má vera í formi bankaábyrgðar eða í greiðslufé. Sjá nánar hér. Er hiti og rafmagn innifalið í leigunni? Nei, leigjandi þarf að greiða hita, rafmagn og hússjóð . Er þetta langtímaleigusamningur? Já, allir samningar félagsins eru til árs í senn og með 3ja mánaða uppsagnarákvæði á báða bóga. Hver er munurinn á tímabundnum og ótímabundnum samningum? Tímabundnum samningi þarf ekki að segja upp eða tilkynna heldur rennur samningurinn út eftir ákveðið tímabil. Ótímabundnum samningi þarf að segja upp sérstaklega og er uppsagnartíminn 6 mánuðir. Hvar fæ ég húsaleigubætur? Sækja þarf um húsaleigubætur til þess sveitarfélags þar sem viðkomandi á lögheimili sitt. Nálgast má upplýsingar um húsaleigubætur hér á síðunni eða á vef félags- og tryggingamálaráðuneytisins. Þá má einnig finna reiknivél húsaleigubóta. Hvernig á húsnæðið að vera þegar ég tek við því? Húsnæðið á að vera hreint og tilbúið til notkunar og með því á að fylgja það fylgifé sem var til staðar við sýningu nema annað hafi verið tekið skýrt fram. Má ég breyta íbúðinni? Íbúð skal skila í sama ástandi og tekið var við henni miðað við eðlilegt slit. Leigjanda er óheimilt að framkvæma breytingar eða endurbætur á hinu leigða húsnæði eða búnaði þess, nema að fengnu samþykki leigusala og gerðu samkomulagi um skiptingu kostnaðar . Hver sér um viðhald? Leigusali skal annast viðgerðir og viðhald á gluggum, raftækjum, hreinlætistækjum og öðru því er fylgir húsnæðinu ef leigjandi sýnir fram á að bilanir verði ekki raktar til vanrækslu eða yfirsjónar leigjanda eða fólks á hans vegum. Leigjanda er skylt að annast á sinn kostnað viðhald á læsingum, vatnskrönum, raftenglum og öðru smálegu. Ef viðhaldi er ábótavant eða gera þarf við verður leigjandi að tilkynna leigusala um málið. Gangi leigjandi sjálfur í viðgerðina án þess að samþykkt leigusala liggi fyrir á hann ekki endurkröfu á leigusala nema með samþykki leigusalans. Þarf ég að kaupa heimilis- eða innbústryggingu? Nei, það er ekki skylt en við mælum þó mjög með því að leigjendur tryggi sig gagnvart mögulegu tjóni með heimilis- eða innbústryggingu. Leigusali kaupir bruna- og húseigendatryggingar. Brunatryggingin tekur aðeins til húseignarinnar en ekki til innbús leigjanda. Húseigendatrygging tryggir húseignina sjálfa, gólfefni og naglfasta muni, þ.e. þá hluti sem þú skilur eftir þegar þú flytur. Hvað ef þvottavélin mín lekur og parket skemmist? Flestar heimilis- og innbústryggingar ná til vatnsskemmda af völdum bilunar í hreinlætistækjum. Sért þú ekki með slíka tryggingu berð þú ábyrgðina gagnvart leigusala. Hvað á ég að gera ef upp kemur tjón? Ef um neyðartilfelli er að ræða, líkt og leka eða bruna skal leigjandi reyna að takmarka tjónið eins og hægt er og tilkynna síðan atvikið til skrifstofunnar. Sé um að ræða atvik utan dagvinnutíma skal tilkynna atburðinn í neyðarnúmer skrifstofu sem og til tryggingarfélags leigusala SETJA INN LINK Á NEYÐARTILFELLASÍÐU. Sé um að ræða minna tjón eða viðgerð sem getur beðið án þess að frekara tjón hljótist af skal hafa samband við skrifstofu næsta virka dag og tilkynna tjónið. Ef um er að ræða almenna viðgerð skal fylla út viðgerðarbeiðni hér á síðunni. SETJA INN LINK Á VIÐGERÐARBEIÐNI Þarf ég að borga í hússjóð? Ef hússjóður er til staðar í fjölbýli þarf leigjandi að greiða þann hluta hússjóðsins sem sér um daglegan rekstur og umhirðu á sameign. Leigjandi þarf að greiða rafmagn og hita bæði af sinni leigðu eign og sameign. Leigjandi á ekki að greiða þann hluta (ef einhver er) hússjóðs sem er ætlaður til viðgerða eða framkvæmda á húsinu. Leyfilegt er að víkja frá þessari reglu ef þess er getið skýrt í leigusamningi. Er dýrahald leyfilegt í íbúðunum? Dýrahald í leiguíbúðunum er óheimilt. Hvar finn ég húsreglur fyrir leiguhúsnæðið sem ég er í? Almennar umgengnis/húsreglur okkar má nálgast hér. SETJA INN LINK Á HÚSREGLUUNDIRSÍÐU Má ég áframleigja húsnæðið? Nei, Óheimilt er að áframleigja húsnæði nema með skriflegu samþykki leigusala. Ef ég skila lyklunum er ég þá laus undan öllum kvöðum? Fari leigjandi úr leigðu húsnæði fyrir án uppsagnar eða áður en uppsagnartímabili lýkur ber honum að greiða leigu út uppsagnarfrestinn nema til þess komi að leigusali finni annan leigjanda í húsnæðið en greiða þarf leigu þar til nýr leigjandi fær húsnæðið afhent. Mig vantar stærri/minni íbúð Best er að hafa samband við okkur og við könnum hvað hægt er að gera. Hvað er langur uppsagnarfrestur? Uppsagnarfrestur á leiguhúsnæði félagsins er 3 mánuðir nema að um annað sé samið og tekur uppsögn gildi 1. dag næsta mánaðar. Uppsögn á tímabundnum leigusamningi lýkur á umsömdum degi án sérstakrar uppsagnar eða tilkynningar að hálfu aðila. Sjá má nánari upplýsingar um uppsögn á leigusamningi hér. Hvernig á ég að skila húsnæðinu? Að leigutíma loknum skal leigjandi skila húsnæðinu í hendur leigusala í sambærilegu ástandi og það var í við upphaf leigutímans en þó að teknu tilliti til þess sem telja má að leiði af venjulegri og forsvaranlegri notkun. Ber leigutaki óskerta bótaábyrgð á allri rýrnun húsnæðisins eða spjöllum á því á leigutímanum, sem ekki leiðir af venjulegri notkun þess. Sjá má nánari upplýsingar hér Hvað ef húsnæðið er selt á leigutímanum? Sala á leiguhúsnæði er ekki bundin samþykki leigjanda. Eldri eigandi framselur skyldur sínar til nýs eiganda og réttindi og skyldur leigjandans haldast óbreyttar. Hvar get ég kynnt mér réttindi mín sem leigjanda? Nokkuð af efni hefur verið gefið út m.a. á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytisins sem og neytendasamtakanna. Tengla á þessar stofnanir og meira nytsamlegt efni má finna hér.
|


