Húsaleigubætur

Innheimta leigu og vanskil

Uppsögn leigusasmnings

Neyðartilfelli

Viðgerðarbeiðnir

Mikilvægi skriflegs leigusamnings

Skil á húsnæði, úttekt og þrif

Tryggingafé

Vátryggingar

Hagnýtar upplýsingar

Spurt og svarað

Uppsögn leigusamnings

Allar eignir félagsins eru til sölu og samningar okkar miðast við 3ja mánaða uppsagnarákvæði og tekur uppsögn gildi 1. dag næsta mánaðar. Uppsögn á tímabundnum leigusamningi lýkur á umsömdum degi án sérstakrar uppsagnar eða tilkynningar að hálfu aðila.

Uppsögn skal vera skrifleg og skal leiguhúsnæðið afhendast eigi síðar en 3 mánuðum seinna í góðu ástandi með tilheyrandi fylgifé (sjá Skil á leiguhúsnæði ).

Gæta þarf þess að skila öllum lyklum að húsnæðinu.

Á uppsagnarfresti er leigutaka skylt að sýna hið leigða væntanlegum leigjendum en jafnan skal tilkynna slíka heimsókn með hæfilegu fyrirvara. Við slíka sýningu húsnæðis skal leigjandi eða umboðsmaður hans jafnan vera viðstaddur. 

Leigjandi skal hafa lokið rýmingu og frágangi hins leigða húsnæðis eigi síðar en kl 13.00 næsta dag eftir að uppsagnarfresti lauk.

Fari leigjandi úr leigðu húsnæði fyrir án uppsagnar eða áður en uppsagnartímabili lýkur ber honum að greiða leigu út uppsagnarfrestinn nema til þess komi að leigusali finni annan leigjanda í húsnæðið en greiða þarf leigu þar til nýr leigjandi fær húsnæðið afhent.

Leigusala er heimilt að rifta leigusamningi í eftirtöldum tilvikum:

  • Ef leigjandi greiðir ekki umsamda leigu á réttum tíma (sjá innheimta og vanskil).
  • Ef leigjandi nýtir húsnæðið á annan hátt en lög eða leigusamningur mæla fyrir um.
  • Ef leigjandi framselur leigurétt sinn án heimildar.
  • Ef leigjandi meinar leigusala eða öðrum, án gildra ástæðna aðgang að hinu leigða húsnæði.
  • Ef leigjandi flyst úr húsnæðinu áður en leigutíma er lokið án þess að hafa gert nauðsynlegar ráðstafanir til gæslu og verndar þess.
  • Ef húsnæðið spillist í umsjá leigjanda vegna slæmrar umgengni eða hirðuleysis þeirra sem leigjandi ber ábyrgð á og hann sinni eigi án tafar kröfu leigusala um úrbætur.
  • Ef leigjandi vanækir, þrátt fyrir áminningar leigusala, skyldur sínar til að sjá um að góð regla og umgengni haldist í hinu leigða húsnæði.
  • Ef leigjandi vanrækir að öðru leyti en hér að framan greinir skyldur sínar samkvæmt leigusamningi eða lögum þessum á svo stórfelldan hátt að rýming hans úr húsnæðinu telst eðlileg eða nauðsynleg. 

Sjá einnig húsaleigulög 36/1994