Dagþjálfun í hlíð
Í Hlíð er starfrækt dagþjálfun fyrir einstaklinga sem búa í heimahúsum og þurfa stuðning í þeim tilgangi að viðhalda færni og getu til að búa áfram heima. Áhersla er lögð á að styðja notendur dagþjálfunar til sjálfstæðis og sjálfræðis, ásamt því að efla færni og sjálfsbjargargetu heima og í dagþjálfun. Tekið er mið af getu hvers og eins þannig að hver og einn fái að njóta sín, finni fyrir öryggi og vellíðan. Fastir liðir í þjálfuninni eru m.a. hópastarf, samverustundir, upplestur, söngur, leikfimi, útivera, gönguferðir, sund, aðstoð í eldhúsi og handverk. Misjafnt er eftir einstaklingum hversu mikið þeir nýta þjálfunina, getur verið allt frá einum degi upp í alla daga vikunnar.
Dagþjálfunin í Hlíð skiptist í dagþjálfun Austurhlíða sem opin er alla daga ársins, frá kl. 8:15 til klukkan 21:00 og dagþjálfun í Grænuhlíð sem opin er alla virka daga frá 8:15 til 16:00. Grænahlíð er lokuð alla rauða almanaksdaga, aðfangadag og gamlársdag er opið til kl. 12:00.
Hvernig sótt er um þjónustu
Til að sækja um þjónustu er farið í gegnum Þjónustugátt og til þess notuð rafræn skilríki eða Íslykill. Aðstoðarmaður getur sótt um fyrir viðkomandi á sínum rafrænum skilríkjum eða Íslykli en þá þarf að muna eftir að breyta upplýsingum inni á svæðinu. Einnig er hægt að sækja um á eyðublöðum með því að smella á hlekkinn hér: umsóknir
Dagþjálfun í hlíð
Í Hlíð er starfrækt dagþjálfun fyrir einstaklinga sem búa í heimahúsum og þurfa stuðning í þeim tilgangi að viðhalda færni og getu til að búa áfram heima. Áhersla er lögð á að styðja notendur dagþjálfunar til sjálfstæðis og sjálfræðis, ásamt því að efla færni og sjálfsbjargargetu heima og í dagþjálfun. Tekið er mið af getu hvers og eins þannig að hver og einn fái að njóta sín, finni fyrir öryggi og vellíðan. Fastir liðir í þjálfuninni eru m.a. hópastarf, samverustundir, upplestur, söngur, leikfimi, útivera, gönguferðir, sund, aðstoð í eldhúsi og handverk. Misjafnt er eftir einstaklingum hversu mikið þeir nýta þjálfunina, getur verið allt frá einum degi upp í alla daga vikunnar.
Dagþjálfunin í Hlíð skiptist í dagþjálfun Austurhlíða sem opin er alla daga ársins, frá kl. 8:15 til klukkan 21:00 og dagþjálfun í Grænuhlíð sem opin er alla virka daga frá 8:15 til 16:00. Grænahlíð er lokuð alla rauða almanaksdaga, aðfangadag og gamlársdag er opið til kl. 12:00.
Hvernig sótt er um þjónustu
Umsókn
Markmið Heilsuvernd Hjúkrunarheimilisins er að tryggja öldruðum vistlegt heimili, hjúkrun, þjálfun og aðhlynningu eftir þörfum hvers og eins með áherslu á vellíðan og ánægju íbúa.
Ef einstaklingur getur ekki lengur búið heima með viðeigandi stuðningi, er hægt að sækja um dvöl á Heilsuvernd Hjúkrunarheimilinu á Akureyri.
Fyrsta skrefið er að sækja um færni- og heilsumat fyrir viðkomandi einstakling.
Umsókn um færni- og heilsumat má finna á vef landlæknisembættis, www.landlaeknir.is.
Umsóknina skal senda til færni- og heilsumatsnefndar í því heilbrigðisumdæmi sem viðkomandi á lögheimili.
Nánari upplýsingar um matið má finna á vef landlæknisembættis. Niðurstaða úr matinu er svo kynnt umsækjanda skriflega og þá fer nafn viðkomandi inn á biðlista heimilisins.
Kostnaður
Gestir dagþjálfunar greiða 1.281 krónur fyrir heilan dag. Innifalið í gjaldi er akstur og fæði. Greiðsla er innheimt með gíróseðlum sem sendir eru út mánaðarlega.
Akstur
Ferliþjónusta Akureyrarbæjar sér um almennan akstur í og úr dagþjálfun. Leigubílar á vegum BSO sjá um akstur einstaklinga í hjólastólum. Bílarnir stöðva fyrir framan heimili dagþjónustugesta og er mikilvægt að vera tilbúin/n þegar bíllinn kemur.
Matur
Í boði er morgunmatur kl. 9.00, hádegisverður kl. 12.00 og síðdegiskaffi kl. 15.00.
Léttur kvöldverður er kl. 18:00.