top of page

Með liðsheild endaði liðið í 2. sæti.

Þann 1. október lauk alþjóða hjólakeppninni sem Hlíð hefur tekið þátt í af krafti síðustu vikur. Það voru yfir 200 lið sem tóku þátt í keppninni í ár og um 5000 þátttakendur frá 11 löndum.


Þetta var í 4. skiptið sem Hlíð tekur þátt og besti árangurinn hingað til. Í liði Hlíðar voru rúmlega 60 þátttakendur og voru alls hjólaðir 11.945 km.

Liðið var sérlega sterkt í ár og margir sem hjóluðu langt og áttum við nokkra keppendur sem náðu inn á topp 30 listann yfir þá sem hjóluðu lengst í keppninni, 5 karla og 5 konur. Þau hjóluðu öll yfir 400 km.


Mikil liðsheild og keppnis gleði var hjá keppendum, lögðu allir sitt að mörkum og skilaði það þessum frábæra árangri.


Á Hlíð hjólaði Torfi Leósson lengst eða 1.200 km, Snjólaug Jóhannsdóttir næst lengst eða 1.080 km og Aðalheiður Einarsdóttir þriðja lengst, 965 km.


Það var lið frá Kanada sem sigraði og hjólaði rúmlega 14.000 km og lið frá Noregi var í 3. sæti með um 8.700 km hjólaða.










bottom of page