20. janúar 2022
Íbúar á Asparhlíð og Eini/Grenihlíð eru nú komnir í sóttkví vegna smita sem greindust í dag hjá starfsmönnum á þessum einingum.
Lokað er fyrir allar heimsóknir á þessi heimili þar til niðurstöður úr sýnatöku mánudaginn 24. janúar liggja fyrir. Aðgerðirnar munu ekki hafa áhrif á aðra starfsemi Heilsuverndar Hjúkrunarheimila.
Gríðarleg aukning hefur verið á smitum í samfélaginu undanfarna dag og það er því mjög brýnt að fara varlega, sérstaklega í kringum okkar viðkvæma hóp, íbúa, notendur í dagþjálfun og tímabundinni dvöl.
Við biðjum ykkur um að draga úr fjölda gesta sem koma í heimsókn eins og hægt er. Miðað er við að tveir aðilar að hámarki sinni heimsóknarhlutverkinu.
Grímuskylda er á alla á Heilsuvernd Hjúkrunarheimili. Gildir einnig á herbergjum íbúa/notenda.
Virðum 2ja metra regluna, bæði gagnvart starfsfólki og öðrum íbúum/notendum.
Heimsóknargestir fara styðstu leið inn og út úr einkarýmum íbúa.
Áfram er heimilt að fara í göngutúra, bíltúra og heimsóknir í heimahús en mælst er til að draga úr fjölda einstaklinga sem umgangast íbúa/notendur og forðast fjölmenna staði.
Við biðjum um að börn og ungmenni komi ekki í heimsókn.
Ekki koma í heimsókn ef þú ert með flensulík einkenni.
Einnig viljum við minna á myndsímtöl. Öll heimilin eru með spjaldtölvur og starfsfólk er alltaf tilbúið að aðstoða við slík símtöl við íbúa/notendur. Munum að persónulegar sóttvarnir eru lykilatriði til að koma í veg fyrir smit, förum varlega.