
Íbúar á Grenihlíð eru nú komnir í sóttkví vegna smits sem greindist hjá starfsmanni í dag 6. nóvember.
Lokað er fyrir allar heimsóknir á Grenihlíð þar til niðurstöður úr sýnatöku miðvikudaginn 10. nóvember liggja fyrir. Til að gæta ítrustu varúðar er einnig lokað fyrir heimsóknir á Einihlíð.
Búið er að upplýsa íbúa, aðstandendur og starfsmenn um stöðuna.
Verkefnið er unnið í samvinnu við smitrakningarteymi Almannavarna og Viðbragðsráð Heilsuverndar Hjúkrunarheimilis.
Aðgerðir á Eini- og Grenihlíð hafa ekki áhrif á aðra starfsemi Heilsuverndar Hjúkrunarheimila.
Við hvetjum aðstandendur og aðra gesti til að sýna ítrustu varkárni í sóttvörnum.