top of page

Sóttkví á Víðihlíð

Íbúar á Víðihlíð eru nú komnir í sóttkví ásamt þremur starfsmönnum vegna smits sem greindist hjá starfsmanni seinni partinn í dag, fimmtudag. Viðkomandi starfsmaður hefur ekki verið í vinnu undanfarna daga.


Lokað er fyrir allar heimsóknir á Víðihlíð meðan á sóttkví stendur eða til og með 17. október að því gefnu að enginn greinist jákvæður í sýnatöku þann dag. Búið er að upplýsa alla íbúa og verið er að hafa samband við aðstandendur þeirra.


Viðbragðsáætlun var virkjuð í kvöld og fyrirmælum rakningarteymis fylgt í hvívetna. Þetta er í annað sinn á stuttum tíma sem íbúar Víðihlíðar þurfa í sóttkví og í annað sinn síðan faraldurinn hófst sem smit hefur áhrif á starfsemi hjúkrunarheimila Heilsuverndar. Enn sem komið er hefur enginn íbúa smitast hvorki á Hlíð né Lögmannshlíð.

Aðgerðir á Víðihlíð hafa ekki áhrif á starfsemi annarra heimila þar sem lífið gengur sinn vanagang. Þrátt fyrir að allir íbúar heimilanna séu nú fullbólusettir og því í mun minni áhættu að veikjast en í upphafi faraldurs þá biðlum við til aðstandenda að virða eftirfarandi reglur:


Heimsóknir

Grímuskylda er á aðstandendur og aðra heimsóknargesti.

  • Mælst er til að draga úr tíðni heimsókna og fjölda heimsóknargesta og huga að því að börn og ungmenni eru óbólusett/ óvarin gagnvart mögulegu smiti.

  • Heimsóknaraðilar sýni varkárni í sóttvörnum og fara eftir þeim sóttvarnarreglum sem gilda í samfélaginu á hverjum tíma.

  • Heimilt er að koma með dýr í heimsókn.

  • Aðstandendum dvelja ekki í sameiginlegum rýmum, fara styðstu leið inn og út úr einkarými íbúa.

  • Aðstandendum er óheimilt að koma í heimsókn ef þeir eru með flensulík einkenni.

  • Aðstandendur sem hafa verið erlendis koma ekki í heimsókn á ÖA í 7 daga eftir heimkomuna. Þeim er heimilt að koma í heimsókn á áttunda degi ef PCR próf á landamærum, sýnataka við komuna til landsins og sýnataka 5-6 dögum eftir komuna til landsins eru neikvæðar.

  • Aðstandendum sem hafa umgengist einstaklinga með COVID-19 smit, er óheimilt að koma í heimsókn á HH.

  • Aðstandendum sem hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 7 dagar frá útskrift, er óheimilt að koma í heimsókn á HH.

  • Áfram er mælst til þess að aðstandendur hafi smitrakningar-app Embættis landlæknis í símum sínum.


bottom of page