top of page

Sóttkví hefur verið aflétt

Sóttkví hefur verið aflétt á Hlíð - Heilsuvernd hjúkrunarheimili á Akureyri eftir að öll sýni sem tekin voru í dag, bæði hjá íbúum og starfsfólki reyndust neikvæð.


Smit greindist hjá starfsmanni s.l. föstudag sem leiddi til þess að nokkrir starfsmenn og allir íbúar Furu- og Víðihlíðar þurftu í sóttkví.


Heimsóknarbann er því ekki lengur í gildi en vegna fjölgunar smita undanfarna daga á svæðinu er þeim tilmælum beint til aðstandenda að þeir takmarki heimsóknir og að óbólusett börn og ungmenni komi ekki að sinni.





bottom of page