
Samantektir um rekstur
Fyrir árin 2016, 2017, 2018 og 2019 hefur verið unnin samantekt um nokkra þætti í starfsemi hjúkrunarheimilanna. Tilgangurinn er að efla vitund og yfirsýn um þróun reksturs hjúkrunarheimilanna og nokkrar stærðir skoðaðar.
Lúðvík Freyr Sæmundsson rekstrarstjóri ÖA (nú Heilsuvernd Hjúkrunarheimili), vann fyrstu samantektina um mitt ár 2016, næsta skýrsla nær til alls ársins 2016 og sú þriðja til alls ársins 2017 og síðan árlega.
Samantekt vegna ársins 2019 er gefin út í okt/nóv. 2020 og birt hér fyrir neðan.
Samantektunum var ætlað að bæta upplýsingamiðlun um reksturinn á hverjum tíma. Markmiðið var líka að efla kostnaðarvitund stjórnenda, starfsfólks, íbúa og aðstandenda, enda vitað að aukin kostnaðarvitund hefur áhrif á útgjöldin.
Samantektarskýrsla - rekstur ÖA 2019: Samantekt ársins 2019