Oddfellow afhendir Lögmannshlíð styrk
Í dag færði Rebekkustúkan nr. 2 Auður á Akureyri Lögmannshlíð styrk fyrir kaupum á nýjum saumavélum.
Styrkurinn er gefin til minningar um Soffíu Georgsdóttur sem var íbúi í Lögmannshlíð. Pia Maud Petersen frá Oddfellow ásamt dætrum Soffíu afhentu styrkinn. Þær Bergþóra Guðmundsdóttir og Margrét Sigurðardóttir sem hafa verið aðstandendur í Lögmannshlíð veittu styrknum móttöku en þær hafa verið sjálfboðaliðar í Smiðjunni síðasta árið. Þær fengu einni smá þakklætisvott frá Lögmannshlíð fyrir sitt framlag.
Búið er að festa kaup á saumavél og overlook vél og hafa þær reynst vel. Þær Bergþóra og Margrét hafa meðal annars saumað dúka fyrir öll heimilin, jóla og hversdags, stykki sem gefin hafa verið til leikskóla og hitapoka sem félagsstarfið selur.
Við þökkum þökkum þeim öllum kærlega fyrir þeirra góða framlag.