
Sjúkrabílabangsar afhentir á Hlíð
Hún Sigurbjörg Ingvadóttir notandi í dagþjálfun á Hlíð afhenti fullan poka af fallegum sjúkrabílaböngsum til sjúkraflutingamanna nú í apríl. Sibba, eins og hún er alltaf kölluð sagðist hafa gert þá í miklum rólegheitum og vonar að börnin sem þurfa að nýta sjúkrabíl finni fyrir þeirri ró og upplifi öryggi þegar þau knúsa bangsana.