
Þakkir til sjálfboðaliðana okkar
Heilsuvernd Hjúkrunarheimilin eru einstaklega rík af sjálfboðaliðum. Í hverri viku mæta til okkar um tólf einstaklingar og taka þátt í mismunandi verkefnum bæði í Hlíð og Lögmannshlíð.
Á Hlíð mætir hópur söngvara ásamt Kristjáni frá Gilhaga harmonikkuleikara og stýra söng á miðvikudögum. Sú stund er alltaf vel sótt og salurinn þéttsetinn. En sá hópur mætir einnig reglulega í Lögmannshlíð og skemmtir íbúum þar.
Alla fimmtudaga er ljóðaklúbbur á Hlíð fyrir íbúa og notendur sem Rakel Hinriksdóttir kom á laggirnar þegar hún var starfsmaður í félagsstarfinu þar. Hún hefur haldið áfram með klúbbinn sem sjálfboðaliði eftir að hún fór í önnur verkefni og með henni Arnar Arngrímsson. Saman mæta þau vikulega og ræða, lesa upp eða hlusta á ljóð frá hinum ýmsu skáldum ásamt íbúum og notendum sem margir hverjir mega alls ekki missa af Ljóðaklúbbnum.
Í Lögmannshlíð koma þau Karl Guðmundsson og Anna Guðný Egilsdóttir tvisvar sinnum í viku með bingó fyrir íbúa og er bingóið ómissandi hluti af starfinu í hverri viku. Á miðvikudögum mæta þær Margrét Sigurðardóttir og Bergþóra Guðmundsdóttir í Smiðjuna í Lögmannshlíð. Þær hafa ásamt íbúum saumað borðdúka og borðtuskur fyrir heimilin í vetur og er einnig hægt að kaupa tuskupakka hjá félagstarfinu í Lögmannshlíð. Nýjasta verkefnið er að sauma smekki sem gefa á leikskóla. Valdimar Jónsson mætir einnig galvaskur alla miðvikudaga og aðstoðar íbúa í tappaverkefni sem þeir vinna fyrir Plastiðjuna Bjarg.
Kráarkvöld eru löngum orðin órjúfanleg hefð af vetrarstarfinu hjá okkur. Þar mætir hljómsveit einu sinni í mánuði bæði á Hlíð og í Lögmannshlíð og leikur fyrir dansi. Sú hefð hefur haldist nánast óslitin í 25 ár með Snorra Guðvarðsson í forsvari. Þess fyrir utan er Snorri alltaf boðinn og búinn til að mæta við hvaða tilefni sem er með gítarinn og söngva en eins og hann segir: ,,Ég er bara eitt símtal í burtu"
Þegar sjálfboðaliðarnir voru spurðir hvað lægi að baki því að koma alltaf aftur og aftur var svarið hjá þeim einfalt: ,,Þetta gefur okkur svo mikið að koma til ykkar."
Við erum full þakklæti til þessara einstaklinga sem gefa af tíma sínum og orku til þess að gleðja íbúa og notendur, það er ekki sjálfgefið í amstri dagsins. Takk fyrir ykkur.
